background image
5
Október -- 113
112 -- Október
m&m's
®
borgarferðin ­ new york
sælGæti
Árið 1941 opnaði fyrsta M&M's
verksmiðjan í Newark, New
Jersey og sama ár var fyrsta
M&M-ið kynnt til sögunnar. 1950
var m-ið sett á sælgætið eins
og við þekkjum í dag og er það
sem einkennir M&M's. Árið 1954
var nokkuð merkilegt í M&M
sögunni. M&M með hnetum þreytti
frumraun sína, slagorðið ,,Melts in
Your Mouth, Not in Your Hands"
varð til og hinar nú heimsfrægu
M&M-persónur birtust í sjónvarpi
í fyrsta skipti. Það var síðan 1960
sem rauðu og gulu persónurnar
voru kynnt sem fyrstu M&M
talsmennirnir en rauði vill meina
að hann hafi verið verið kynntur 2
sekúndum á undan. 1988 bættist
M&M með möndlum í vöruúrvalið
og 1991 M&M með hnetusmjöri.
Það bættist í hóp M&M-
talsmanna/persóna árið 1995
þegar blái mætti til leiks eftir að
10 milljónir manna kusu að bæta
bláa í litaflóruna. Tveimur árum
seinna, árið 1997, birtist græna á
sjónarsviðið og appelsínuguli var
síðan kynntur árið 1999. Árið 2006
kom M&M með dökku súkkulaði
í búðir og ári síðar dökkt M&M
með hnetum. 2009 var það M&M
með kókos sem festi sig í sessi
í M&M-fjölskyldunni og ári síðar
komst M&M-preztel inn. Það var
síðan í fyrra, árið 2012, sem sjötti
M&M-talsmaðurinn/persónan
var kynnt til leiks. Það var brúna
eða fröken Brún og birtist hún
fyrst í auglýsingu í auglýsingahléi í
,,Superbowl" eða Ofurskálinni.
Allar sex persónurnar hafa
persónuleika og einkenni, við
skulum kynnast þeim aðeins.
RAUÐUR: Rauður er augljós
leiðtogi hópsins (í hans eigin
huga). Hann hefur talað fyrir
hópinn frá árinu 1951 þannig að
það er erfitt fyrir hann að deila
sviðsljósinu með hinum M&M'S
persónunum.
GULUR: Gulur lætur Rauðan
og Appelsínugulan um að hafa
áhyggjur af hlutunum og getur því
leyft huga sínum að reika (ekki að
hann reiki mjög langt ...). Hann
meinar ávallt vel, en hann er ekki
beittasti hnífurinn í skúffunni.
BLÁR: Svalur, sjálfsöruggur,
nútímalegur ­ þetta eru nokkur af
orðunum sem best lýsa Bláum. Þú
myndir þó aldrei heyra hann segja
þetta. Þegar þú er jafn svalur og
Blár er engin þörf á að auglýsa.
APPELSÍNUGULUR:
Appelsínugulur er ekki vænisjúkur
­ hann er raunsær. Þegar þú
ert svona gómsætur getur
verið hættulegt að vera frægur.
Hann myndi gerast vinur þinn á
Facebook, en friðhelgisstillingarnar
hans leyfa einungis vini með enga
bragðlauka.
GRÆN: Þú veist hvað er sagt um
græna M&M, og hún veit það líka.
Hún kemst áfram á greind sinni
þegar hún þarf þess, en oftast
bræðir hún þá bara með brosinu
sínu.
FRÖKEN BRÚN: Hún hikar ekki
við að nota þurran húmor sinn til
að lækka rostann í fólki og sýnir
sjaldan aðra tilfinningu en yfirlæti.
M&M's® skál með tveimur M&M-pokum
M&M's® dósir ­ með
250 g M&M-poka
Fyrsta M&M's®
Mynd: Alexander Shafir