background image
2
Október -- 25
olay
gott að taka með í ferðina
snyrtivörur
Regenerist Advanced age-defying Eye Roller
Treatment

Augngelpenni sem bæði stinnir og þéttir húðina
í kringum viðkvæmt augnsvæðið og gefur
húðinni ljóma. Rannsóknir húðlækna hafa leitt í
ljós einstaka virkni á samsetningu innihaldsefna
Regenerist. Kemur í veg fyrir hrukkur og gefur
húðinni ljóma.
Stálkúlurnar á fremsta svæði pennans gefa
húðinni kælingu sem vinnur vel á bólgum
eða þrota í kringum augnsvæðið. Inniheldur
samsetningu hreinna Amino-Peptíða sem gefa
húðinni raka, stinna og þétta húðina í kringum
augun.
Click - Release - Massage
Penninn hentar öllum
húðgerðum, þurri,
venjulegri og blandaðri húð.
Hentar húð sem er 45+.
Notist daglega kvölds
og morgna á hreina
húð. Pumpa er aftan á
pennanum sem ýtt er á til
að fá gelið fram í pennann.
Berið litlar doppur undir
augnsvæðið, á augnlokin
og til hliðar við augun og
nuddið með pennanum
hringlaga hreyfingar.
Anti-Wrinkle 2 in1 Firm & Lift day Cream +
Serum
Dagkrem með viðbættu serumi sem dregur
sjáanlega úr hrukkumyndun og fínum línum og
veitir húðinni mjúka en jafnframt stinna áferð á
innan við 20 dögum. Serumið veitir
húðinni aukinn ljóma og
mýkt. Gott og virkt krem.
Inniheldur B3-vítamín,
E-vítamín, Pro vítamín
B5, andoxunarefni og
grænt te.
Sýnilegur árangur.
Unglegra yfirbragð.
Stinnir og þéttir húðina.
Rakagefandi og
andoxunarríkt.
E-vítamín endurnýjar
húðina og gefur einstaka
mýkt.
Kremið hentar öllum
húðgerðum. Þurri,
venjulegri, blandaðri og
feitri húð. Hentar húð sem er 30+.
Notist á morgnana. Berið kremið á andlit og háls.
Það gengur fljótt og vel inn í húðina, gefur fallega
áferð og er frábær grunnur fyrir andlitsfarðann.
Forðist að setja kremið nálægt augnsvæði.
visiblE diffErEncE
bb krem frá elizabeth arden
Visible Difference Multi-
Targeted BB Cream SPF 30
hentar fyrir allar húðgerðir.
Kremið er alhliða lausn sem
beinist að og bætir úr tilteknum
húðvandamálum ­ hvort sem um
ræðir feita, blandaða eða þurra
húð ­ og stuðlar þannig að jöfnum
og skínandi litarhætti. Kremið er
samsett úr hýalúrónsýru og efnum
sem seinka öldrun húðar þannig
að samstundis og til lengri tíma
nást framfarir í ljóma, áferð og
litarhætti.
Létt, þekjandi (þú stjórnar hversu
mikið þú vilt að kremið þeki, það
er hægt að setja nokkrar umferðir
fyrir meiri þekju) formúlan
dregst auðveldlega inn í húðina
og veitir þann grunn og endingu
sem konur vilja að uppáhalds-
snyrtivörurnar sínar bjóði upp á.
Húðbætandi steinefni hjálpa til við
að draga úr lýtum og slétta fínar
línur og hrukkur, auk þess sem
andoxunarrík C-vítamínafleiða lýsir
upp húðina og gerir hana skínandi
fallega. Húðin er vernduð fyrir
skaða í framtíðinni með SPF 30
UVA/UVB fjölvirkri vernd.
Kremið fæst í þremur litum:
Litur 1
Mjög ljós litarháttur og bleikur
undirtónn.
Litur 2
Ljós til miðlungs litarháttur og
ljósbrúnn til gylltur undirtónn.
Litur 3
Dekkri litarháttur og gylltur
undirtónn.
24 -- Október