trú að hver einasta kona geti verið falleg og grundvöllur fegurðar er hrein og heilbrigð húð. Að nota réttan hreinsi er fyrsta skrefið í átt að fallegri húð þar sem það hámarkar frammistöðu allra umhirðuvaranna sem notaðar eru í kjölfarið. Estée Lauder kynnir nú nýju Perfectly Clean línuna sem samanstendur af fjórum fjölvirkum hreinsum og andlitsvatni sem umbreytir húð þinni. Foam Cleanser/Purifying Mask Hrein unun er að nota þessa ríkulegu hreinsifroðu sem djúphreinsar og frískar húðina án þess að skilja eftir neinar leifar. Fyrir hraða hreinsimeðferð má nota vöruna sem maska tvisvar í viku eða eftir þörfum. Creme Cleanser/Moisture Mask Þetta silkimjúka hreinsikrem hefur nærandi áhrif og viðheldur raka á með mildum hætti. Húðin verður með þessum hætti mjúk og frískleg og ofþornar ekki. Til að fá fram meiri raka má nota kremið tvisvar í viku sem hraða maskameðferð. Cleansing Gelée/Refiner Þetta hreinsigel er hannað þannig að mildar djúphreinsandi örperlur rúlla létt yfir húðina og hafa fægjandi áhrif. Fínleg áferð gelsins myndar mjúka froðu sem hjálpar til við að fjarlægja fituleifar og óhreinindi sem stíflað geta svitaholur. Með þessum hætti verður húðin skínandi hrein og laus við dauðar húðflögur. Cleanser/Toner/Makeup Remover Þessi öfluga, fjölvirka formúla býður þrenns konar ávinning, þ.e. hún virkar sem hreinsir, farðahreinsir og andlitsvatn. Örlétt hreinsifroðan umbreytist í hárfína þurra húð og hefur hreinsandi og nærandi áhrif. Toning Lotion/Refiner Þetta djúphreinsandi andlitsvatn hreinsar ekki einungis burtu óhreinindi, heldur auðveldar það einnig náttúrulegt ferli húðendurnýjunar. Endurnýjandi efnasamband sem er í andlitsvatninu hjálpar til við að rjúfa þær tengingar sem halda dauðum húðfrumum föstum og færa endurnýjun húðar í eðlilegt horf. Dúnmjúk og þægileg formúlan frískar upp á húðina og kemur á hana jafnvægi. Þeim mun reglulegar sem varan er notuð, þeim mun mýkri og bjartari verður húðin. |