background image
ÁFENGI
90
91
DRYKKURInn T-9.
Drykkurinn T-9 kemur frá barþjónunum á
Slippbarnum á Marina. Drykkurinn inniheldur
vínið Birki sem er alíslenskt.
4 cl Birkir
3 cl sterkt Earl Grey te
3 cl hunangssíróp (1 hluti hunang leyst
upp í 1 hluta af vatni)
1,5 cl Triple sec líkjör
1,5 cl Limoncello
2,5 cl ferskur sítrónusafi
Allt sett í hristara með klaka og hrist vel. Sigtað
með kokteilsigti og fínu sigti í kokteilglas. Þessi
kokteill var skreyttur með graslauksblómi, endi-
lega notið hugarflugið við að skreyta.
ICELanDIC POnY
4 cl Björk
Engiferöl
Ísmolar
Sítrónubátur
Icelandic Pony er okkar tvist á klassíska
kokteilinn Moscow Mule. Moscow Mule var
kokteill bandaríska þotuliðsins á fimmta áratug
síðustu aldar en margir þekkja drykkinn sem
Asna.
Talið er að Moscow Mule hafi komið af stað
vinsældum vodka-kokteila sem varir enn þann
dag í dag. Þrátt fyrir nafnið er Moscow Mule
bandarískur kokteill en nafnið vísar í hugmyndir
fólks um vodka sem rússneska afurð.
Við ákváðum að aðlaga þennan hressandi
kokteil að íslensku áfengi og aðstæðum og
skiptum vodkanu út fyrir Björk birkilíkjör frá
Foss distillery. Útkoman gat auðvitað ekki heitið
neitt annað en Icelandic Pony.
Sætt og trékennt
birkibragðið fellur sérlega
vel við engiferölið en þessi
óvænta blanda gefur nýtt
og ferskt bragð.
4 cl af Björk er hellt í hátt
long drink glas, fullt af
ísmolum. Toppað upp með
engiferöli. Vænn sítrónubátur
kreistur yfir og notaður til
skrauts.
BJÖRK
OG BIRKIR
Björk og Birkir eru áfengir drykkir unnir úr
íslensku birki, framleiddir af Foss distillery í
Borgarnesi. Björk birkilíkjör og Birkir birkisnafs
eru afrakstur tilraunastarfsemi með eiginleika
og möguleika íslenska birkisins í áfengis- og
matvælagerð.
Gunnar Karl Gíslason matreiðslumaður og Ólafur
Örn Ólafsson vínþjónn leiddu þá tilraunastarf-
semi á veitingastaðnum DILL í Norræna húsinu
í Reykjavík þar sem möguleikar íslenskra nátt-
úruafurða eru í forgrunni. DILL hefur verið
leiðandi staður í nýnorrænni matargerðarlist
á Íslandi um árabil. Frá upphafi var haft að
leiðarljósi að Björk og Birkir skyldu fanga
upplifunina af íslenskri vornótt á augnablikinu
sem styttir upp og döggin sest á birkivaxna
hlíðina. Við höldum að við höfum komist ansi
nærri því!
Birkitréð (Betula pubescens), sem er
einkennandi fyrir íslenska náttúru, hefur marga
heilnæma eiginleika en við hjá Foss distillery
völdum að nota það í áfengið okkar út af
einstöku og afgerandi bragðinu. Birkið sem
við notum kemur úr óspilltri íslenskri náttúru
Hallormsstaðaskógar. Í Hallormsstaðaskógi
njótum við góðs af þekkingu skógardísanna
Bergrúnar og Guðnýjar hjá Holti & heiðum
en þær framleiða einnig birkisýrópið sem við
notum í vörurnar okkar. Með þeirra hjálp notum
við birkið sem grisjað er af trjánum á vorin í
áfengið okkar.
Öldum saman hafa Íslendingar notað birkið
gegn ýmsum kvillum. Árið 1860 skrifaði
Alexander Bjarnason bóndi um hreinsandi,
styrkjandi og lystvekjandi eiginleika birkisins í
riti um íslenskar drykkjarjurtir. Síðan þá hafa
Íslendingar drukkið birki í te og dásamað það
fyrir marga góða eiginleika þess og áhrif á húð,
hár og jafnvel kynhvötina! Rétt eins og íslenska
þjóðin hefur birkið þá einstöku hæfni að vaxa og
dafna við erfiðar aðstæður og loftslag. Nöfnin
Björk og Birkir eru eins og fleiri íslenski nöfn
dregin af birkitrénu.
Birkir er snarpur snafs með fersku ríkjandi
birkibragði sem gefur skemmtilega vídd. Birkir
er best framreiddur í koníaksglasi, á klaka eða
sem fordrykkur eða með kaffinu. Birkir í tónik
eða sódavatni er sérlega hressandi drykkur.
Birkir er tilvalinn í kokteila.
Björk er sætur líkjör, búinn til úr íslensku birki og
birkisýrópi. Angan er mild og þokkafull og minnir
einna helst á íslensku vornóttina. Björk hentar
vel sem eftirdrykkur með kaffinu. Björk blönduð
í tónik eða sódavatn er tilvalinn fordrykkur ­ við
köllum það B&T! Enn glæsilegri er Björk í þurru
freyðivíni eða kampavíni sem fordrykkur. Björk
er tilvalinn í blöndun kokteila.