sn
yrtiv
örur
14
15
Við mælum með góðri hreinsun. Það
skiptir miklu máli að hreinsa húðina
eftir annasaman dag. Tala nú ekki
um þegar við ferðumst til stórborga
þar sem mengun getur verið mikil. Til
að ná þessari góðu hreinsun má t.d.
mæla með vörum frá Sensai.
Sensai
Cellular Performance
andlitsvatnið
og hreinsikremið sem er silkimjúkt,
fljótvirkt og þægilegt, mýkir og sefar
húðina og hentar öllum húðgerðum.
Andlitsvatnið gefur að auki húðinni
þann raka sem þarf svo húðnæringin
Cellular Performance Essence og
kremin Cellular Performance Lifting
og Cream gangi betur inn í húðina.
Cellular Performance Essence
dregur
á áhrifaríkan hátt úr sýnileika fínna
hrukka. Það má bera á húðina bæði
kvölds og morgna.
Cellular Performance
Lifting
hefur lyftandi áhrif á húðina
með því að styrkja andlitsvöðvana og
veita þeim orku. Kremið hentar vel yfir
húðnæringuna, bæði kvölds og morgna.
Ekki má gleyma augnsvæðinu en í Sensai
kremlínunni má finna
SCP Eye Cream
,
sem er áhrifaríkt augnkrem sem eykur
þéttleikann í kringum augun, mýkir línur
og veitir raka og næringu.
Fyrir þær yngri má nefna
Skin
Ergetic
kremlínuna fá Biotherm sem
inniheldur náttúruleg innihaldsefni
framleidd úr ávöxtum og grænmeti.
Kremin gefa húðinni einstaka orku
og eyða þreytumerkjum. Þessi lína er
án parabena og inniheldur dagkrem,
næturkrem og serum.
Svo þarf að huga að förðuninni. Þar er
hægt að benda á mjög hentugt meik
frá Dior sem heitir
Capture Total
sem
einnig inniheldur serum. Meikið hentar
vel bæði í leik og starfi því það er með
sólarvörn númer 15. Kremið vinnur
gegn öldrun, þekur húðina vel, gefur
einstaklega góðan ljóma og gerir
förðunina lýtalausa. Gott er að nota
Skin Flash Radiance Booster
pennann
frá Dior með til að fela bauga og er hann
sérlega góður í kringum munninn áður
en varaliturinn er settur á, hann gefur
vörunum meiri fyllingu.
BB kremin
er nýjung sem vert er að
skoða. Við seljum BB krem frá t.d. Estee
Lauder,Clinque, Lancome og Dior. BB
kremin eru lituð dagkrem með háum
sólarvarnastuðli og gefa húðinni
einstaklega fallegan ljóma.
Það er alltaf gaman að
fylgjast með og skoða haust
litalínuna. Haustlitirnir frá
Chanel
eru einstaklega
litfagrir með dumbrauðum
og rauðum varalitum, með
varalitablýanta í stíl.
Einnig erum við gott
úrval af naglalökkum í
öllum litum og má
þar nefna vörumerkin Chanel og Opi
sem dæmi. Kinnalitirnir eru í tísku og
við eigum gott úrval af þeim, það er
skemmtilegt að eiga einn sem gefur þér
náttúrulegt útlit og fágaðan ljóma.
Við erum með mjög gott úrval af
möskurum og alltaf með það nýjasta.
Má þar nefna
Hypnose Doll Eyes
frá
Lancome og
Sumptuous Two Tone
frá
Estee Lauder sem er tvöfaldur, brúnn
öðru megin og svartur hinu megin.
Einnig vorum við að fá nýjan maskara
frá Clinique sem lengir sérlega vel og
þykkir, og það nýjasta í þessu sambandi
er svo
Bottom Lash Mascara
frá Clinique
sem er með mjög litlum bursta og er
góður fyrir neðri augnhárin. Til að ná
hámarksárangri með maskaranum
þínum er nauðsynlegt að eiga í
snyrtibuddunni Cils Booster sem er
settur undir maskarann til að þykkja og
lengja augnhárin enn betur, auk þess
sem hann drýgir maskarann. Við eigum
Cils Booster
til í nokkrum merkjum svo
sem Lancome, Dior og Chanel.
fríhöfnin státar af því að hafa hæfa
snyrtifræðinga til að aðstoða viðskiptavini
sína. tímaritið náði tali af einum þeirra
og bað hann að segja okkur frá því með
hverju hann mælir fyrir haustið