background image
sn
yrtiv
örur
24
25
Sagan á bakvið
Clinique
var boðið að vinna með fyrirtækinu
að sköpun nýs vörumerkis. Þau voru
bæði mjög áhugasöm vegna þessa og í
ágúst árið 1968 kom CLiNiQUE, fyrsta
vörumerkið sem þróað er af húðlæknum,
ilmefnalaust og 100% ofnæmisprófað,
á markað. Í dag er Clinique eitt stærsta
snyrtivörumerkið á markaðnum og selt í
yfir 135 löndum víðsvegar um heiminn.
ER HæGT Að BúA TiL FALLEGRi Húð
Árið 1967 tók blaðamaðurinn Carol
Phillips viðtal við einn fremsta húðlækni
þess tíma, Dr. Norman Orentreich, fyrir
bandaríska tímaritið Vogue. Í viðtalinu
sem bar titilinn ,,Can Great Skin Be
Created?", á ensku eða ,,Er hægt að
búa til fallega húð?" var leitast við að
svara þeirri spurningu með lýsingu á
einfaldri hugmynd sem átti eftir að
marka tímamót í snyrtivöruframleiðslu.
Í greininni lýsir Dr. Orentreich hvernig
hægt sé að gera húðina fallegri og
heilbrigðari. Evelyn Lauder, tengdadóttir
Estée Lauder, las greinina og vakti
athygli á henni hjá Estée Lauder
fyrirtækinu með þeim afleiðingum að
bæði Carol Phillips og Dr. Orentreich
JÁ ÞAð ER HæGT Að GERA
HúðiNA FALLEGRi OG
HEiLBRiGðAR
!
Markmið Clinique er að bjóða upp á
klæðskerasniðnar lausnir fyrir allar
húðgerðir. Húðin þarfnast daglegrar
umhirðu en áhrifaþættir eins og
aldur, árstíðir og persónulegt val
hverrar manneskju gerir það að
verkum að þarfir húðarinnar geta
verið jafn mismunandi og tegundirnar
eru margar. Efnasamsetningar
og formúlur sem hæft geta
þessum fjölmörgu húðtegundum
eru það sem gera húðumhirðu
Clinique einstaklingsmiðaða.
Aðaláhersla Clinique er á 3ja þrepa
húðumhirðukerfið, en það er bein afurð
rannsókna Dr. Orentreich sem reyndi
að sýna fram á að allir gætu öðlast
fallega og heilbrigða húð. Einstaklingar
með margskonar húðgerðir voru
fengnir til að fara daglega eftir þremur
einföldum þrepum með húðvörum
frá Clinique: hreinsun, endurnýjun og
næringu. Í kjölfarið var í raun hægt að
svara spurningu blaðagreinarinnar
sem haft hafði svo mikil áhrif á
snyrtivöruframleiðandann Estée Lauder
árið 1967: Já, það er hægt að gera
húðina fallegri og heilbrigðari með réttu
vörunum og daglegri umhyggju.