background image
fr
amkv
æmdastjór
aspjall
8
9
Fríhafnarinnar. Í nóvember 2012
verður nýr áfangastaður til innan
Fríhafnarinnar fyrir karlmenn. Við
köllum þennan stað Mens world. Í
fyrsta sinn verður öllum snyrtivörum
fyrir karlmenn komið fyrir á einn stað,
svo karlpeningurinn þarf ekki lengur að
leita í versluninni. Þar geta menn einnig
fengið að smakka á fínum viskíum,
koníaki, rauðvíni og svo mætti lengi telja.
Aðalatriðið er að þeir geta gengið að
vörunni sinni í Mens world.
Dutyfree Fashion
Dutyfree Fashion er af mörgum talin ein
flottasta tískuvöruverslun á flugvelli í
Evrópu. ,,Það er eitthvað svo sérstakt
við hana," segja margir viðskiptavinir
okkar. Við látum aðra eftir að dæma
það en kynnum enn á ný nýja íslenska
hönnuði í versluninni. Rosa Bryndis
er nýtt kvenfatamerki í Dutyfree
Fashion. Á bak við hið nýja merki
eru Bryndís Þorsteinsdóttir og Rosa
Winther Denison, en þær kynntust í
hönnunarnámi við Vera ­ The school
of Art and Design. Þær leggja mikla
áherslu á gæði, fjölbreytileika og lúxus
í sinni hönnun. Það verður spennandi
að fylgjast með þessu nýja merki í
Dutyfree Fashion en Keflavíkurflugvöllur
er af mörgum talinn einn stærsti
sýningargluggi landsins fyrir íslenska
hönnun og framleiðslu.
En það er fleira nýtt að gerast í íslenskri
hönnun í Dutyfree Fashion. RE101
er ný íslensk hönnun. Re101 eru
íslenskir herraskór úr laxaroði. Þeir
eru handsaumaðir samkvæmt gamalli
hefð í fjölskyldufyrirtækjum á Ítalíu
Borgarferðir
Það er fallegt á að líta á suðvestur
horninu þessa daganna. Við erum
kyrfilega minnt á það að sumarið er liðið
og haustið gengið í garð þegar byrja
þarf daginn á að skafa hrímið af bílnum
eftir næturfrostið. Það er óhætt að
segja að sumrin eru lengri víðast hvar
en hér á landi. Margir hafa tekið þykku
yfirhafnirnar fram á meðan Parísarbúar
geta gengið nokkuð léttklæddir um í
október og í Kaupmannahöfn má enn
sjá fólk sitja utandyra á kaffihúsum,
jafnvel þótt laufin séu farin að falla.
Októberfest eru að hefjast í Þýskalandi
og svo mætti lengi telja. Það er af nægu
að taka vilji fólk bregða sér út fyrir
landsteinana.
Íslendingar taka við sér á
haustmánuðum og margir hverjir fara
í borgarferð. Samkvæmt könnunum
þá kjósa íslendingar að ferðast til
stórborganna á haustin og njóta alls
þess sem þær hafa upp á að bjóða. Það
mætti líkja stórborgarlífi við hálfgerðan
frumskóg, það er allt á iði og eitthvað
sem grípur augað á hverju strái, það er
nóg um að vera. Allir frægu staðirnir,
verslanirnar, veitingastaðirnir, fólkið
og menningin. Ferðamaðurinn drekkur
þetta allt í sig þegar þetta sameinast
í eina magnaða upplifun. Þá er líka
spennandi að fara á nýjan áfangastað,
upplifa eitthvað alveg nýtt. Þótt sumir
kjósi að ,,fara heim" vegna þess að þeir
þekkja viðkomandi borgir orðið eins
og lófann á sér. Það er margt sem má
gera öðruvísi í erlendum stórborgum
en heima á Íslandi. Hjólaleigur eru
spennandi kostur vilji fólk komast hratt
og ódýrt yfir, en oft erfiður ferðamáti í
verslunarferðum. Mæli þó með að allir
prófi það að minnsta kosti einu sinni. Að
skoða söfn er eitthvað sem margir hafa
gaman af. Framboðið er mikið og nær
til næstum allra áhugasviða. Eina sem
þarf er að gefa ímyndunaraflinu lausan
tauminn og kíkja á eins og eitt safn næst
þegar farið er.
Ef einhver hefur ekki fengið nóg af því
að versla eftir að hafa farið í gegnum
flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þá má
oft gera bestu kaupin í úthverfum og
hliðargötum í stórborgunum. Í örlitlum,
oft illa merktum verslunum má gera
kjarakaup og oft finnst hönnunarvara í
þessum verslunum sem jafnvel finnst
hvergi annars staðar. Þeir sem vilja
virkilega prófa annan verslunarmáta
ættu að skoða flóamarkaði en þeir
finnast í nánast hverri einustu stórborg.
Aðalatriðið er að hafa gaman af ferðinni
og njóta þess. Fríhöfnin tekur svo vel á
móti þreyttum ferðalöngum við komuna
heim.
Mens world
Nú standa yfir nokkrar
breytingar á brottfararverslun