background image
sn
yrtiv
örur
20
21
Helena Rubinstein
- Konan sem
uppgötvaði fegurð.
Helena Rubinstein vissi að fyrirtæki
verða að hafa sterkan grunn til
að byggja á. Hennar mottó var að
gera konur fallegri, til þess að auka
sjálfstraust þeirra. Hún varð fyrst
manna að skilgreina húðina í þrjá flokka
(1910). Og varð fyrst til að þróa virkar
vörur; kornakrem sem hún kallaði Deep
Clean(1950), krem sem inniheldur
vítamínblöndur, Lanolin vitamin
formula (1954), rakagefandi krem
Skin Dew (1956) og Contour Lift film,
krem til að styrkja og lyfta húðinni.
Þetta voru vörur sem unnu á bólum
og unnu á móti húðskemmdum vegna
sólarinnar (versta óvini húðarinnar).
Hún lagði mikla áherslu á að nota
vísindi í þágu fegurðarinnar, hún nýtti
sér nýjustu rannsóknir í húðlækningum
og jafnvel skurðlækningum. Hún gerði
einnig miklar kröfur til hreinlætis
og innihaldsefna í framleiðslu vara
sinna. Hún hafði einnig áhrif á ,,make-
up" markaðinn, sem varð til þess að
venjulegar konur, (ekki bara leikkonur
og vændiskonur!) fóru að nota farða og
maskara.
maskarinn
Hún kom með fyrsta vatnshelda
maskarann á markaðinn 1939
og fyrsta ,,sjálfvirka" maskarann
(Long Lash) í ,,hylki" 1958.
Það útlit þekkjum við vel enn í
dag.
,,Það eru ekki til ljótar konur,
eingöngu latar konur!" -
Helena
Rubinstein
HVAð ViL ÉG Að MASKARiNN
GERi FyRiR AUGNHÁRiN MÍN?
Maskarar eru mjög misjafnir og kröfur
kvenna til maskarans eru ólíkar. Konur
eru með stutt, löng, þykk, þunn,
bein eða sveigð augnhár og því mjög
misjafnar þarfir þeirra. Því er um að
gera að spyrja hvað maskararnir gera.
Maskarinn sem besta vinkona þín notar
er hugsanlega ekki rétti maskarinn fyrir
þig.
Maskarar sem þykkja augnhárin eru
oft með þykka kremformúlu, þannig að
það fer mikið magn af maskaraefnum á
augnhárin. Þessir maskarar endast því
styttra.
Maskarar sem lengja augnhárin eru með
þynnri formúlu, þeir ná því að lengja
augnhárin, ná að greiða vel úr þeim og
gera þau mjög eðlileg.
Maskarar sem sveigja augnhárin
innihalda efni sem virkja náttúrulega
hegðun augnháranna. Þannig að
augnhárin verða vel sveigð með
nokkrum strokum.
Margir maskarar vinna á mörgum
þáttum í einu t.d. að þykkja, lengja og
sveigja allt í einni stroku.
Svo nú er bara
að finna rétta
maskarann.