background image
tísk
a
50
51
rOSaBryndiS
hELiCOPtEr
Í vetrarlínu Helicopter ferðumst við til
regnskóga Papúa Nýju-Gíneú þar sem skrautlegi
hamur fuglsins "Wilson's Bird of Paradise" veitir
fjórðu fatalínu Helicopters innblástur með
marglituðum fjöðrum sínum en í línunni ráða
litrík prent og prjónaflíkur ríkjum.
Nafn línunnar, The Teenager in the Forest,
kemur frá ömmu Helgu Lilju sem lengi
hefur verið uppspretta innblásturs fyrir
fatamerkið. Í sumarlínunni notaðist Helga við
krosssaumsmynstur úr skúffum ömmu sinnar,
Jórunnar Viðar, en nú er það uppáhalds lag
Helgu eftir Jórunni, Unglingurinn í skóginum,
sem kyndir undir sköpunargáfunni og eru
mynstur prjónaflíkanna m.a. þaðan sprottinn.
Nýja línan leggur
áherslu á prjónaföt og
sjóndeildarhringurinn
er víkkaður með nýjum
útfærslum af sniðum á
meðan þægindi eru
ávallt í hávegum höfð.
ROSA * BRyNDiS er merki sem er fágað
en um leið frumlegt og er skapað til að
koma til móts við hinar fjölbreytilegu
þarfir nútímakonunnar. Fötin eru einstök,
tilraunakennd og koma sannarlega
ögn á óvart. Hugljómun hönnuðanna
kemur bæði frá náttúrlegum formum og
manngerðum sem aftur hefur þau áhrif
að flíkurnar eru ögn óhefðbundnar og um
leið kvenlegar.
Vetrarlínan er inspireruð af Parísarborg.
Þær eru töff, kvenlegar og með
skemmtileg snið