áf
engi
64
65
segir Snorri Jónsson sem á og rekur
64° Reykjavik Distillery ásamt Judith
Orlishausen hönnuði. Einföld og fersk
stafagerð með lit í samræmi við hvern
líkjör fyrir sig. Leikur með tungumálin
þar sem blandað er saman íslensku og
ensku. Leikur með skiptingu nafnanna
í þrjár þriggja stafa línur, sem rímar við
sérstaka lögun flöskunnar, sem er há
og mjó. Glært gler til að afgerandi litur
líkjöranna njóti sín. ,,Engar málamiðlanir
eru okkar mottó, við hættum ekki fyrr en
við vorum fullkomlega sátt bæði við útlit
og innihald. Okkar hugmyndafæði byggir
á því að nýta innlend ber og jurtir við
framleiðsluna og skapa þeim viðeigandi
umgjörð. Við höfum tröllatrú á okkar
frábæra íslenska hráefni."
Þann 24. október verður glæsileg
verðlaunhátíð til heiðurs vinngshöfum
í Konzerthus Berlín. Gefin verður út
bók þar sem verkin og verðlaunahafar
verða kynntir og þennan sama
dag verður einnig formleg opnun
sýningar á verkunum sem stendur til
28. október. Fyrir þá sem ekki eiga
heimangengt mun efnið einnig verða
aðgengilegt á heimasíðu keppninnnar
frá verðlaunahátíðinni og fram að næstu
keppni.
64° reykjavik
distillery
hlýtur rauða
depilinn 2012
64° Reykjavik Distillery hlýtur Rauða
depilinn 2012 fyrir hönnun á líkjöralínu
sinni, sem unnin er úr íslenskum
hráefnum: krækiberjum, bláberjum og
rabarbara. Red dot award er ein stærsta
og virtasta viðurkenning sem veitt
er fyrir hönnun og er til marks um að
hönnunin sé framúrskarandi á sínu sviði
í alþjóðlegu samhengi. Þátttakendur
í ár voru 6823 frá 43 löndum og hlaut
Reykjavik Distillery viðurkenningu
í flokki umbúðahönnunar. Þetta er
ánægjuleg viðurkenning fyrir 64°
Reykjavik Distillery sem er þarna að
keppa við það besta sem er að gerast
í hönnun í heiminum í dag. Til dæmis
má nefna að stórfyrirtæki á borð við
Carlsberg, Apple og Leica voru meðal
þeirra sem hlutu Rauða depillinn 2011.
Hönnun umbúða skiptir miklu máli
þegar um drykkjarvöru er að ræða,
því flaskan og merkimiðinn þurfa að
kveikja hugboð um innihaldið strax
við fyrstu sýn. ,,Við vildum að útlitið
væri tært og ferskt eins og líkjörarnir"