background image
tísk
a
48
49
Vetrarlína ELLA heitir að þessu sinni
V - FOR ViCTORy. Áfram er lögð áhersla
á falleg snið og góð efni. Línan var
sýnd á tískuviku í New york í febrúar
síðastliðnum.
Nafngiftin á þessari línu kemur til þar
sem margar myndir á hugmyndaborðinu
hjá þeim eru frá tímum seinni
heimstyrjaldarinnar. Ein mynd höfðaði
sterklega til þeirra - en þar fagnaði fólk
á götum úti endalokum styrjaldarinnar
með því að mynda ,,V" með fingratákni.
Listagyðja línunnar er Lauren Hutton.
Tímalaus fegurð hennar, stórt brosið og
þokki setti sitt mark á línuna.
Í boði eru fjölmörg ný snið en einnig
er unnið út frá góðum grunni sem
starfsfólk ELLA hafa nú þegar skapað
sér. Í fyrsta sinn mun ELLA bjóða
upp á ullar- og kasmír efni frá ítalska
ullarframleiðandanum Loro Piana.
ELLa
KrOn
KRON by KRONKRON er hugarfóstur
Hugrúnar Árnadóttur og Magna
Þorsteinssonar. Hugrún útskrifaðist sem
fatahönnuður árið 2000 frá Studio
Bercot París og Magni útskrifaðist sem
hárgreiðslumeistari árið 1998.
Þau stofnuðu sína fyrstu búð, KRON árið
2000 og árið 2004 opnuðu þau sína
aðra verslun KRONKRON. Búðirnar selja
bæði skó og fatnað frá þekktum
merkjum ásamt ungum og upprennandi
hönnuðum.
Árið 2008 varð draumur þeirra um að
hanna eigin skólínu að veruleika og í
kjölfar þeirrar velgengni sem sú línu
hefur notið hafa þau nú bætt við sig
fatalínu.
KRON by KRONKRON einkennist af
litagleði, sköpunargleði og mikilli natni
við smáatriði. Andi merkisins er tímalaus
en umfram allt kvenlegur og fallegur.
Kveikjan að haustlínu KRON by
KRONKRON eru afrískar kvenhetjur.
Línan inniheldur sterkari liti, ný snið og
mikinn kraft þar sem að kvenorkan er
undirstrikuð.