background image
6
7
um fríhö
fnina
bjóða 12 íslenskir hönnuðir fatnað, skó
og fylgihluti í versluninni, en nýjustu
vörumerkin eru RE 101 og Rósa Bryndís.
Dutyfree Fashion vinnur í samstarfi
við Valitor og Reykjavík Runway um
markaðssetningu og sölu á fatnaði
frá ungum íslenskum hönnuðum.
Reykjavík Runway er fyrirtæki sem
sér um markaðssetningu íslenskra
hönnuða erlendis og Valitor er öflugur
bakhjarl íslenskrar hönnunar. Það er
því vel við hæfi að þessir þrír aðilar skuli
standa saman að kynningu á íslenskum
hönnuðum og vera öðrum til fyrirmyndar
í þeim efnum þar sem Dutyfree Fashion
er einn stærsti sýningargluggi landsins
og mikilvægur stökkpallur fyrir unga
íslenska hönnuði út í hinn stóra heim
tískunnar.
Ferðamenn sem hafa áhuga á að kanna
og upplifa hið stórbrotna land sem
Ísland er ættu ekki að láta
Iceland
Dutyfree
fram hjá sér fara sem staðsett
er í suðurhluta flugstöðvarinnar.
Verslunin er eingöngu með íslenskar
vörur; snyrtivörur, áfengi, sælgæti
og skrautlega fylgihluti. Verslunin er
skemmtilega skreytt myndum frá Ozzo
af íslensku landslagi, eldgosum og
Jökulsárlóni.
Last minute shopping
byggist á
því að bjóða viðskiptavinum það allra
helsta, ef eitthvað hefur gleymst í aðal
brottfararversluninni. Allra vinsælustu
vörurnar sem eru á topp 10 sölulista eru
fáanlegar í þessari verslun.
Dutyfree utan Schengen
er verslun
fyrir farþega sem ferðast til landa utan
Schengen-svæðis. Verslunin er hlýleg og
skreytt íslenskum landslagsmyndum frá
Ozzo. Boðið er upp á alþjóðleg vörumerki
í áfengi, tóbaki, snyrtivörum og sælgæti.
Einnig er mikið og skemmtilegt úrval af
íslenskum vörum sem falla vel í kramið
hjá erlendum ferðamönnum.
Komuverslun
býður farþegum upp
á góða þjónustu í rúmgóðri verslun
þar sem þeir geta notið þess að kaupa
tollfrjálsan varning við komuna til
landsins. Komuverslun er til þess
ætluð að spara óþarfa vesen hjá
ferðamönnum, að bera innkaupapoka frá
öðrum löndum með sér í flug, auk þess
sem verðlagið er yfirleitt hagstæðara en
á nágrannaflugvöllum okkar. Ferðamenn
geta notið ferðalagsins betur með því
að kaupa inn þegar þeir eru lentir á
Keflavíkurflugvelli á meðan þeir bíða
eftir farangri sínum.
Panta og sækja
Síðast en ekki síst viljum við benda
viðskiptavinum okkar á þá nýju þjónustu
að geta pantað vörurnar og sótt, hvort
heldur í brottför eða við komuna til
landsins. Einfalt og þægilegt.
VELKOmin
Fríhöfnin ehf. rekur
sex verslanir
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, fjórar
fyrir brottfararfarþega, eina ætlaða
skiptifarþegum frá löndum utan
Schengen-svæðis og þá sjöttu
fyrir komufarþega á 1. hæð. Helstu
vöruflokkar Fríhafnarinnar eru áfengi,
fatnaður, leikföng, snyrtivörur, sælgæti
og tóbak.
Brottfararverslun
sem er björt og
glæsileg býður upp á gott vöruúrval fyrir
ferðamenn á öllum aldri. Þar má finna
mörg vinsælustu erlendu vörumerkin og
mikið úrval er af íslenskum vörum, hvort
heldur áfengi, snyrtivörur eða sælgæti.
Victoria`s Secret
verslunin sem
staðsett er í brottfararverslun
Fríhafnarinnar býður upp á flott
úrval af vinsælustu vörum í Victoria`s
Secret Beauty vörulínunni, einnig er
sérstakt úrval af bolum, nærbuxum,
töskum og veskjum og má þar nefna að
töskurnar fást eingöngu í verslunum
Victoria`s Secret sem staðsettar eru á
flugstöðvum.
Í
Dutyfree Fashion
má finna
heimsþekkt vörumerki fyrir konur og
karla á borð við Boss, Lloyd og Burberry.
Þess má geta að Dutyfree Fashion er
eina verslunin á Íslandi sem hefur á
boðstólum fatnað frá Burberry. Nýtt
merki bættist við í sumar en það er
Mulberry. Töskur frá Mulberry eru mjög
eftirsóttar, sérstaklega af erlendum
ferðamönnum. Verðlagið á þessum
vörumerkjum þykir afar hagstætt á
Íslandi og segja margir að það þekkist
hvergi lægra en í Dutyfree Fashion.
Íslensk hönnun hefur verið í forgrunni
og er úrvalið orðið mjög fjölbreytt. Í dag