tísk
a
52
53
rE101
SPiraL
Spiral design er íslensk hönnun og
fatnaðurinn er saumaður á Íslandi.
Hönnunin er sótt í umhverfið, fólkið og
líðandi stund hverju sinni, tímalaus og
þægilegur fatnaður hugsaður fyrir konur
á öllum aldri.
Haustið og veturinn hjá Spiral Design
einkennist af einföldum sniðum,
klassískum og umfram allt þægilegum
fatnaði. Litirnir eru svart í bland við ljóst.
Peysur og peysukjólar eru áberandi en
einnig síðir og léttir kjólar sem hægt er
að nota ýmist við leggingsbuxur og eða
sokkabuxur.
Svo verða
húfur, treflar og
þykkir klútar í
skemmtilegum
litum sem poppa
oft upp svarta litinn
sem er án efa alltaf
vinsælastur.
Íslenskir herraskór, handsaumaðir úr
laxaroði.
Herraskór frá RE101 eru nú fáanlegir
í Dutyfree Fashion. RE101 skór eru
handsaumaðir samkvæmt gamalli hefð
í smáu upplagi af fjölskyldufyrirtækjum
á Ítalíu og Portúgal. Hönnun og efnisval
eru bæði klassísk og nýstárleg sem
gefur skónum líflegt og karlmannlegt
yfirbragð, en RE 101 er fyrst vörumerkja
til að hanna og markaðssetja heila
vörulínu saumaða úr laxaroði.
RE 101 er íslenskt vörumerki sem
hefur getið sér góðs orðs á Ítalíu fyrir
stílhreina og tímalausa hönnun ásamt
áhugaverðu vali á hráefni, en uppistaðan
í því vali er laxaroð frá Sjávarleðri á
Sauðárkróki. RE 101 línan sýnir að
hægt er að sameina gæði og tímalausa
hönnun samtímis með því að bera
virðingu fyrir fólki og umhverfi.