sn
yrtiv
örur
28
29
Umhirða húðar, hvernig eigum
við að viðhalda æskuljómanum?
Til að viðhalda ,,æskuljómanum" í
húðinni er nauðsynlegt að hreinsa og
næra húðina vel. Þó að farði sé ekki
notaður daglega þarf samt sem áður að
hreinsa óhreinindi af húðinni.
Húðin er stöðugt að endurnýja sig
og því er regluleg hreinsun húðar
nauðsynleg. Mikilvægt er að velja
hreinsi og andlitsvatn við hæfi.
Húðin getur verið mjög mismunandi
allt frá því að vera mjög þurr, með
yfirborðsþurrk og mikinn raka yfir í
að vera feit og glansandi. Flestir eru
með normal húð sem skiptist í að vera
normal/þurr eða normal/feit. Margar
konur með normal húð eru með
blandaða/feita húð á ,,T" svæði (,,T"
svæðið er enni, nef og haka og myndar
einskonar T yfir andlitið.)
Hinn fullkomni
andlitshreinsir fyrir
normal húð er
Galatéis
Douceur
sem hægt er að
nota bæði fyrir andlit og
augu. Formúla Galatéis
Douceur er fersk, létt og
kremkennd sem nær að
hreinsa öll óhreinindi af
eins og farða, augnskugga
og mengun.
Til að klára hreinsun húðarinnar
er æskilegt að nota andlitsvatn.
Hreinsirinn skilur eftir sig fína filmu
sem andlitsvatnið hreinsar af. Að auki
lokar andlitsvatnið húðholunum, frískar
og gefur ljóma.
Til eru margar tegundir af
andlitsvötnum en þau sem eru fyrir
normal/þurra húð eða normal/blandaða
húð eru
Tonique Doucheur
og
Tonique
Éclat.
Best er að setja andlitsvatnið í
bómul og strjúka yfir andlit og háls
kvölds og morgna.
Á yfirborði húðarinnar safnast fyrir
dauðar húðfrumur. Sérstaklega á
svæðum við nef og á
höku. Gott er að hreinsa
þessar dauðu húðfrumur
af með kornaskrúbb einu
sinni til tvisvar í viku.
Exfoliance Clarté
kornaskrúbburinn frá
Lancôme er einstaklega
góður til að ná af dauðum
húðfrumum á yfirborði
húðarinnar. Í honum eru
tvær tegundir af kornum.
Annars vegar lítil blá
(örkristallar) og svo stór
hvít með ensímum sem flýta
fyrir losun dauðra húðfruma.
Húðin er stærsta líffærið okkar og
bregst við hita og kulda. Á Íslandi er
allra veðra von og því er næringamaski
góð auka vörn fyrir húðina. Frostið,
hitabreytingarnar og vindurinn þurrka
upp húðina og gera hana stífa og þurra.
Hydra Intense
rakamaskinn gefur
húðinni næringu, raka,
sléttir úr fínum línum
og gefur húðinni ljóma.
Hann er einstaklega
þægilegur í notkun.
Maskinn er settur á þurra
hreina húð og látin bíða í
5 mín.
Þegar húðumhirðan og hreinsunin er
góð þá gera kremin og serumin meira
gagn þar sem húðin er hrein og laus við
óhreinindi eins og dauðar húðfrumur.
Serum eru til í mörgum gerðum og
hlutverk þeirra eru mismunandi. Serum
veitir húðinni næringu, eykur ljóma,
styrkir, þéttir, byggir upp og og vinnur
á fínum og djúpum línum. Flest serum
eru sett á hreina húðina undir krem. En
það getur þó verið mismunandi eftir
tegundum. Serum eru í flestum tilfellum
þunnur vökvi sem inniheldur mikið
magn af virkum efnum. Í kremum eru
virku efnin líka en þá er að auki búið að
bæta við efnum sem næra og gefa raka.