sn
yrtiv
örur
22
23
BB kremin
BB krem eru allsstaðar - frá risa skiltum
í búðargluggum til sjónvarpsauglýsinga
á besta tíma. Konur um allan heim eru
spenntar fyrir þessu nýja kremi.
Æðið byrjaði í Asíu, fór þaðan til
Bandaríkjanna og tröllríður nú Evrópu.
Hver snyrtivörurrisinn á fætur öðrum
selur nú BB krem.
BB þýðir ,,Beauty Balm" eða ,,Blemish
Balm" allt eftir formúlunni. Þetta er í
grundvallaratriðum litað dagkrem með
eiginleikum húðvara og með sólarvörn,
SPF.
Kremin virka eins og photoshop í túpu,
og yngja húð þína samstundis. Þau vinna
á húðinni með því að slétta samstundis
úr fínum línum og hrukkum eða öðrum
misfellum eins og örum eftir bólur.
Kremin hafa einnig þann eiginleika
að draga úr roða og mýkja yfirborð
húðarinnar, en mattar
þar sem húðin þarf á því
að halda og gefur henni
lýtalaust útlit. Sumar
gerðir verja húðina í leið
gegn sól og öðrum skaða.
Hægt er að nota BB
krem eitt og sér á eftir
uppáhalds dagkreminu
þínu. Það dregur fram
fallegt lýtalaust útlit án
farða. Einnig er hægt að
nota það undir farða til
að fullkomna húðina enn
frekar, farðinn helst þá
einnig betur á.