36
37
BLUE LAGOON ALGAE MASK
NÆRIR, LYFTIR OG EYKUR LJÓMA
*In vitro og in vivo prófanir: Grether-Beck S. **Neytendapróf: 20 konur.
KONUR SJÁ ÁRANGURINN
**
Blue Lagoon algae mask er nýr og nærandi þörungamaski sem dregur úr fínum línum, styrkir efsta varnarlag
*
HREIN NÁTTÚRUFEGURÐ
FULLKOMIÐ SAMSPIL NÁTTÚRU OG VÍSINDA
VIRK HRÁEFNI
Blue Lagoon jarðsjórinn og einstök náttúruleg hráefni hans -- kísill, steinefni og þörungar -- eru uppistaðan
í húðvörum frá Blue Lagoon. Jarðsjórinn er þekktur fyrir lækningamátt sinn og jákvæð áhrif á húðina. Blue
Lagoon hráefnin eru ræktuð beint úr náttúrunni með náttúruvænum aðferðum. Þessi aðferð endurspeglar
fullkomið samspil náttúru og vísinda. Hún tryggir að við getum notað það sem náttúran færir okkur á
hreinan og öruggan hátt til að veita okkur heilsu, vellíðan og fegurð.
ÞÖRUNGAR | GEGN ÖLDRUN HÚÐARINNAR
Í jarðsjó Bláa Lónsins eru tvær tegundir þörunga,
kúluþörungur og þráðþörungur.
Nýlegar rannsóknir teymis Bláa Lónsins sýna að
kúluþörungurinn dregur úr niðurbroti kollagens í húðinni
af völdum skaðlegra geisla sólar og þráðþörungurinn
örvar náttúrulega kollagenmyndun húðarinnar.
STEINEFNI | ENDURNÆRIR HÚÐINA
Blue Lagoon jarðsjórinn inniheldur einstaka samsetningu
steinefna. Þau eru mikilvægur hluti Blue Lagoon
húðvaranna því að þau endurnæra og viðhalda jafnvægi
húðarinnar. Árangurinn er heilbrigð húð sem geislar
af náttúrulegri orku.
KÍSILL | STYRKIR HÚÐINA
Blue Lagoon kísillinn verndar húðina fyrir umhverfis-
áhrifum með því að styrkja náttúrulegt varnarlag hennar.
Heilbrigð virkni varnarlags húðarinnar er einn af
lykilþáttum í viðhaldi heilsu og útgeislunar húðarinnar.