áf
engi
68
69
vín frá
Gérard Bertrand
sem var valinn
víngerðarmaður Evrópu árið 2011 af
víntímaritinu Wine Enthusiast. Við erum
með mjög breiða vörulínu frá honum, allt
frá mjög góðum og ódýrum vínum upp
í hágæða vín. Auk þess stendur til að
auka úrvalið á vínum frá Ítalíu og Spáni á
næstu vikum.
Hvað með sterka áfengið? Eru þar
á ferðinni einhverjar nýjungar sem
þér þykja athyglisverðar?
úrvalið hjá okkur hefur aldrei verið betra.
Við höfum tekið inn nýjar vörulínur í
vodka, gini, rommi, viskíi og koníaki.
Til dæmis
Ciroc vodka, Bulldog gin, La
Mauny romm
, við fáum margar nýjar
tegundir í viskíi og
Bisquit koníak
er
væntanlegt. Og það sem kannski ekki
allir vita þá erum við yfirleitt með besta
verðið á flugvöllum í Evrópu á sterku
áfengi. Til dæmis erum við að selja
skoskt viskíi á mun betra verði en er á
flugvellinum í Glasgow og úrvalið hjá
okkur er ekki síðra.
Nú hefur bjórsalan aukist jafnt og
þétt í kjölfar aukins tollskammts
og tvöföldunar á úrvali í
komuversluninni. Er eitthvað sem
hefur komið þér á óvart þar, eða
eitthvað nýtt sem þú telur rétt að
nefna?
Bjórsala er mjög mikil hjá okkur. Staða
vinsælustu bjóranna hjá okkur hefur
ekki breyst mikið á milli ára. En það er
gaman að sjá hvað viðskiptavinir okkar
eru tilbúnir að prófa nýjar bjórtegundir.
Við byrjuðum að selja
Bríó bjórinn
Viðtal við
tryggva Blöndal
Starfsmann Fríhafnarinnar
Nú er komið haust, sumarið liðið
og þá breytist oft áfengisvalið
hjá farþegum sem eiga leið um
komuverslun Fríhafnarinnar.
Við ákváðum að spyrja
Tryggva Blöndal, sem annast
komuverslunina, hvaða vín
og áfengi væri vinsælast á
haustmánuðum meðal farþega.
Tryggvi, hvaða vín eru ,,haustvínin"
meðal farþeganna?
Mesta aukningin á sölu í áfengi á
haustmánuðum er á Ákavíti, brennivíni
og ýmis konar snafsar. Einnig taka
heitir drykkir við sumardrykkjunum.
Viðskiptavinir okkar kaupa meira af írsku
viskíi til þess að blanda í irish Coffee og
Stroh romm í kakóið til að halda á sér hita
á aðventunni. Þegar nær dregur jólum þá
kemur jólabjórinn í sölu hjá okkur, það er
gríðarleg ásókn í hann. Auk þess eykst
salan á púrtvíni og sérríi umtalsvert
bæði til að dreypa á á aðventunni og
nota í sósur og súpur.
Hvernig breytast léttvínskaupin
á haustin? Eru einhverjar þrúgur
vinsælli en aðrar?
Léttvínssalan breytist strax eftir
sumarið. Rauðvín tekur við af
hvítvínssölunni. Viðskiptavinir velja
sér betri vín á haustin en á sumrin. Á
sumrin kaupa þeir léttari vín, sem henta
vel eitt og sér, með léttum mat og grill
steikum. En á öðrum árstímum kaupa
þeir gjarnan þyngri vín, vín sem hafa
legið lengur á eikartunnum og henta
betur með stórsteikum. Þetta helst sem
sagt í hendur við það sem fólk borðar.
Viðskiptavinir okkar kaupa frönsk og
ítölsk vín í meira mæli. Þessi vín þykja
almennt vera bestu matarvínin.
Hvað með kampa- og freyðivín?
Hvenær er helst áhugi fyrir þeim
og hvaða vín finnst þér helst vera
slá í gegn meðal viðskiptavina
undanfarið?
Sala á þessum
vínum er jöfn allt
árið. Það er einna
helst í nóvember og
desember þar sem
salan tekur kipp.
Viðskiptavinir vilja
fagna tímamótum
með eftirminnilegum
hætti.
Eru einhver ný vín
í hillunum hjá þér
sem þér finnst
áhugaverðari en
önnur?
úrvalið á frönskum
vínum er mjög gott.
Til dæmis erum við
komin með í sölu