áf
engi
72
73
Snorri
Nýja sérvara Fríhafnarinnar er
áfenga ölið Snorri sem kemur frá
Borg brugghúsi. ölið var unnið í góðri
samvinnu Borgar og Fríhafnarinnar, en
að leiðarljósi var haft að búa til öl sem
væri al-íslenskt á allan hátt, sérstakt á
bragðið og einstakt vegna upprunans.
Vatnið, byggið, kryddið er allt íslenskt,
næstum ekkert erlent hráefni var notað
við framleiðsluna Bara agnarögn af
erlendum humlum voru notaðir.
Frá því að hugmyndin að ölinu kviknaði
og þar til það var komið á flöskur liðu
um níu mánuðir. En biðin sýnist okkur
hafa verið vel þess virði. Svona öl
fæst nefnilega ekki hvar sem er. Við
bíðum svo spennt eftir áliti okkar góðu
viðskiptavina.
Í lýsingu bruggmeistara Borgar á ölinu
segir:
,,Snorri er þjóðlegt öl. Hann er bruggaður
úr innlendu byggi og kryddaður með
alíslensku, lífrænu blóðbergi. Snorri
er margslunginn og ekki allur sem
hann er séður. Hann er ósíaður, örlítið
skýjaður en engu að síður ljós yfirlitum.
Lyktin gefur til kynna að pundið sé
þungt í Snorra, en annað kemur í ljós
við smökkun; það er létt yfir honum
og ferskleiki í fyrirrúmi. Eitt af því sem
gerir Snorra enn meira spennandi er
ljúffengur og framandi ávaxtakeimur
sem blandast skemmtilega við hinn villta
lyngkeim. Snorri er aðgengilegur bjór og
hentar t.d. vel með léttri villibráð.
Við erum ákaflega stolt af Snorra og
sýnum honum tilhlýðilega virðingu með
því að kenna hann við sjálfan Snorra."
Líkt og bruggmeistarar Borgar erum
við líka ákaflega stolt af að geta boðið
viðskiptavinum Fríhafnarinnar upp
á vöru sem er einstök. Við erum líka
ákaflega ánægð með nafngiftina, því
Snorri Sturluson er jú meðal þekktari
Íslendinga á Norðurlöndum og var líka
þekktur fyrir kornölið sem bruggað var
á bænum hans. Við vonum sannarlega
að Snorri nr. 10 mælist vel fyrir meðal
viðskiptavina.