áf
engi
62
63
Við fengum hrefnu
Sætran til að gefa okkur
uppskriftir og fyrir valinu
varð lakkrískrydduð
nautalund og
óhefðbundnar vöfflur
Lakkrískrydduð
nautalund
800 g nautalund
3 msk hrásykur
3 msk svartur pipar
1 msk fennelfræ
4 stk stjörnuanis
4 rif hvítlaukur
Olía til að pensla með
Salt
Aðferð: Snyrtið nautalundina og skerið hana
í fjórar steikur. Blandið saman sykrinum,
piparnum, muldum fennelfræjunum,
muldum stjörnuanisinum og fínt söxuðum
hvítlauknum. Nuddið helmingnum af
kryddblöndunni á kjötið og marinerið í 20
mínútur. Nuddið svo afgangnum á kjötið
og leyfið að marinerast aftur í 20 mínútur.
Penslið kjötið með olíu, kryddið það með
salti og grillið það í 4 mínútur á skurðinum.
Snúið kjötinu reglulega svo að hitinn komist
sem jafnast að miðjunni og kjötið verði
safaríkt.
Súkkulaðibrownie
vaffla
Rjómaostakrem
250 g rjómaostur
40 g sykur
100 g hvítt súkkulaði
125 ml þeyttur rjómi
Aðferð: Setjið rjómaostinn, sykurinn
og súkkulaðið í vatnsbað og bræðið.
Léttþeytið rjómann. Blandið saman
rjómaostinum og rjómanum.
Kælið.
Vöfflurnar
1/2 bolli brætt smjör
1 bolli sykur
3 egg
1 tsk lyftiduft
1/2 bolli hveiti
1/3 bolli kakóduft
1/4 bolli hnetusmjör
Aðferð: Þeytið sykurinn og smjörið vel saman. Bætið
eggjunum út í. Bætið svo þurrefnunum og hnetu-
smjörinu út í. Bakið degið í vöfflujárni í 3-5 mínútur.
Jarðaberjasósa
200 ml vatn
200 g sykur
10 kardimommur
1 vanillustöng
1 jarðarberjaaskja
Aðferð: Setjið
vatnið, sykurinn,
kardimommurnar og vanillustöngina í
pott. Sjóðið sýrópið niður um helming.
Skerið jarðarberin í báta og hellið
sýrópinu yfir berin.
Mikil eik, kaffi og vanillubaunir, kjötmikið, svartur,
þurr og þykkur ávöxtur. Kröfugt og margslungið vín.
Frábært matarvín.
Þetta vín er gert úr ævafornri ljósgylltri þrúgu sem nefnist Moscatel de Alejandría og
er þannig kennt við borgina Alexandríu í Egyptalandi. Sagan segir að hin eina sanna
Kleópatra hafi þótt vín úr þessar þrúgu sérlega gott. Vínviðurinn er einhver sá elsti
sem til er. Þrúgan er klárlega sæt, enda var hún gjarnan notuð til rúsínugerðar hér fyrr
á öldum. En Moscatel de Alejandría er sætvín sem hentar sérlega vel með eftirréttum,
sér í lagi úr súkkulaði. Vínið hefur þegar unnið til margra verðlauna, m.a. Nariz de Oro
Best spanish Moscatel (Spánn), Silver `Zarcillo' (Spánn), Gold Noé (Spánn), Silver Medal
Mundus Vini (Þýskaland), Silver Medal China Wine and Spirits Competition (Kína), og
Gold Medal La Selección (Þýskaland).
Við mælum með Roda I rauðvíni
með nautinu
Við mælum með Moscatel
sætvíni með eftirréttinum