áf
engi
70
71
síðastliðið haust og hefur hann verið
mjög vinsæll. Brugggerðin Borg
hannaði fyrsta alíslenska bjórinn
fyrir Fríhöfnina, hann heitir
Snorri,
íslenskt öl nr.10. Gaman er að segja
frá því að hann er bara til sölu í
Fríhöfninni og hefur selst mjög vel
síðan hann kom í sölu hjá okkur í
sumar. Stefnan hjá okkur er að reyna
að vera alltaf með eitthvað nýtt og
spennandi fyrir viðskiptavini okkar.
Við höfum selt bjór frá Japan, núna
erum við með
Boddingtons
sem
er enskt ale í sölu sem fæst hvergi
annars staðar á Íslandi.
Er marktækur munur á því sem
erlendir ferðamenn velja og svo
þeir íslensku hvað áfengi varðar,
þegar þeir koma til landsins?
Það er gríðarlegur munur á sölu
í komuverslun til útlendinga og
Íslendinga. útlendingarnir kaupa
bjór og síðan íslenskar vörur. Þeir
eru mjög spenntir fyrir
Reyka vodka
og
íslenska Brennivíninu.
Þeir hafa
mikinn áhuga á að kaupa vörur sem
þeir fá ekki í sínu heimalandi.
Hvaða vín eru svo jólavínin í
þínum huga?
Pinot Noir þrúgan frá Burgundi í
Frakklandi hentar mjög vel með önd
og annarri léttari villibráð.
Eikað chardonney hentar mjög vel
með kalkún. Það eru til dæmis dýrari
hvítvín frá Chile og Argentínu. Góð
frönsk hvítvín henta með humri. Ég
kaupi gjarnan Chablis eða Poully-
Fuissé.
öflugt shiraz hentar vel með rjúpum.
Það eru frábær kaup á áströlskum
shiraz vínum hjá okkur.
Betri ítölsk vín eru í uppáhaldi hjá mér
með nautakjöti. Brunello, Amarone,
Chianti Classico svo einhver séu
nefnd. Gott vín frá Rioja á Spáni
með lambakjöti. Við erum að selja
virkilega góð reserva og gran reserva
þaðan og kosturinn við vín frá Spáni
er sá að vínframleiðandi er búinn að
geyma vínin fyrir neytendur svo þau
eru upp á sitt besta þegar þau koma á
markað.
Hvaða vín eða annað áfengi
er ómissandi í þínum huga um
hátíðirnar?
Sætvín finnst mér ómissandi um
hátíðarnar. Ekkert er betra með góðum
eftirrétt en gott sætvín og eins er
gott að dreypa á því á meðan maður
pakkar inn gjöfunum. úrvalið hjá okkur
í sætvínum hefur aukist sem betur fer
upp á síðkastið. Það mætti vera betri
sala á sætvínum á Íslandi en það virðist
vera að Íslendingar séu ekki ennþá búnir
að uppgötva hversu ljúffeng þessi vín
geta verið og hvað þau henta vel með
ostum sem og eftirréttum.
Uppskrift af Irish Coffee
3 cl Jameson irish Whiskey
2 tsk púðursykur
Kaffi
Hrærið saman og fleytið hálfþeyttum
rjóma ofan á.