background image
Heilræði
fyrir foreldra
Það er mismunandi hvernig börn og
unglingar nota netið. Það veltur t.d. á
því hversu þroskuð þau eru, hvernig
foreldrar þeirra umgangast tæknina
og hvaða tæki eru aðgengileg heima, í
skólanum eða hjá vinum.
vodafone
| Vetur 2013
6
Öryggisráð
allir aldurshópar
Hafið í huga hvernig þið hagið
heimilislífinu almennt og beitið
sömu aðferð í hinum stafræna
heimi. Ekki vera hrædd um að
setja börnum skýr mörk og
reglur strax frá unga aldri.
Prófið ykkur áfram með þær
tækninýjungar sem börnin
ykkar nota. Spilið við þau í
leikjatölvunni, skráið ykkur á
helstu samfélagsvefina og prófið
vinsælustu öppin.
Ræðið við fjölskyldu, vini og aðra
foreldra um hvaða aðferðum þau
beita til að hjálpa sínum börnum
að fóta sig í stafrænum heimi
­ þannig fást ábyggilega mörg
góð ráð.
Nýtið ykkur tól sem eru
hönnuð til að vernda börn,
hvort sem það er á tölvum,
spjaldtölvum eða leikjatölvum.
Skoðið persónuverndarvalkosti
á samfélagsmiðlum og
öryggisstillingar á YouTube,
Google og öðrum leitarvélum.
Reynið að nota tæknina ekki í of
miklum mæli sem barnapíu. Við
gerum það auðvitað flest öðru
hvoru, en það er mikilvægt að
gera það í hófi og vita ávallt hvað
barnið aðhefst.
Gerið tæknimál að hluta af
daglegu spjalli. Sýnið barninu að
þið skiljið hversu mikilvæg og
spennandi tæknin er fyrir það, en
ekki forðast að tala um erfiðari
mál á borð við ábyrga hegðun
á netinu, einelti með aðstoð
tækninnar og klámfengið efni.
Öryggisráð
yngri en 5 ára
Byrjið strax að setja reglur ­ það
er t.d. aldrei of snemmt að setja
reglur um hversu miklum tíma
megi verja við tölvuna á hverjum
degi.
Hafið viðkvæm tæki á borð við
snjallsíma þar sem börn ná ekki
til þeirra og notið lykilorð til að
verja símana ef þau komast óvart
í þá.
Kynnið ykkur aldurstakmarkanir
og lýsingar á öppum, leikjum og
myndskeiðum af netinu áður
en þið veitið barninu aðgang að
efninu.
Útskýrið tæknireglurnar fyrir
þeim sem passa barnið svo þau
geti einnig framfylgt þeim.
Hafið í huga að þráðlaus net
á opinberum stöðum (t.d.
kaffihúsum) eru mögulega ekki
með tólum til að vernda börn
fyrir óæskilegu efni. Þannig að
ef þið látið barnið fá iPad sem
tengdur er slíku neti gæti það
komist í efni sem lokað er á
heimafyrir.
Stillið opnunarsíðu vafrans
á heimilistölvunni eða
spjaldtölvunni á vefsíðu sem
þið vitið að er ávallt örugg fyrir
börnin.