![]() Þegar ég fer utan kaupi ég mér yfirleitt tímarit eða kiljur í bókabúðinni ásamt léttum latte frá Kaffitári sem ég sötra á fyrstu metrum flugferðarinnar. Þegar ég lendi kaupi ég stundum Havana Club flösku eða Bombay gin til að eiga á heimabarnum mínum. Auk þess kaupi ég alltaf M&M en það er bara út af nafninu. Síðast keypti ég M&M, tvö hjólabretti og Angry Birds bolta ... Þetta tvennt síðarnefnda var ekki handa mér. í Fríhöfninni, Dutyfree Fashion eða Victoria's Secret? Ég verð að játa að merkjavara er mitt ,,guilty pleasure" og þegar ég fer í fríhafnir erlendis stelst ég stundum til að kaupa mér eitthvert fínerí. Ég væri alveg til í að hafa Chanel og Louis Vuitton í Leifsstöð. |