![]() síðastliðnum en það er samstarfsverkefni hönnuða og fyrirtækja á Suðurnesjum. Markmið Heklugoss er að kynna skapandi kraft og fjölbreytta hönnun sem finna má á Suðurnesjum. Yfir 700 manns mættu í Atlantic Studios þar sem sýningin var haldin en heiðurinn af henni eiga Helga Steinþórsdóttir hönnuður og atvinnuþróunarfélagið Heklan. stuðningsaðilar eru SKASS (Samtök kraftmikilla, alvöru og skapandi Suðurnesjakvenna), Bláa Lónið, Íslandsbanki, Kadeco, Dutyfree Fashion og Valitor, en samstarfsverkefni þeirra síðasttöldu ber yfirskriftina ,,Saman látum við hlutina gerast." Dutyfree Fashion og Valitor leggja mikinn metnað í að efla sýnilega á alþjóðaflugvelli en Dutyfree Fashion er stærsti sýningargluggi landsins fyrir íslenska hönnun og mátti sjá brot af því besta á sýningunni í gær. Fatnaður frá Freebird, Kron Kron, ELLU, Farmers Market og nýjasta merkinu í versluninni Huginn Muninn vakti mikla athygli og hrifningu gesta. |