background image
74 -- Júní
Júní -- 75
74 -- Júní
Júní -- 75
grillréttUr
suMarsIns
Skerið tómatana í helminga,
skrælið mangóið og skerið
það í fallega teninga, skerið
vorlaukinn smátt. Blandið
öllu saman í skál, rífið börkinn
af limeinu yfir og kreistið
safann úr því líka. Hellið olíunni
yfir ásamt hlynsírópinu.
Blandið kóriandernum saman
við og bragðbætið með saltinu
og piparnum.
Við fengum Eyþór Rúnarsson
yfirmatreiðslumann á Nauthól
til að gefa góða uppskrift á
grillið í sumar. T-Bone steik
varð fyrir valinu.

























Grilluð T-Bone steik með
kartöflusalati og tómat-
mangósalsa
Uppskrift fyrir 4
4 stk. T-Bone steikur
ca. 300 gr stk.
Maldonsalt
Svartur pipar úr kvörn
Marinering
100 ml sólblómaolía
1 tsk. dijonsinnep
60 ml appelsínusafi
2 msk sojasósa
1 msk tómatpuré
Blandið öllu hráefninu saman í
skál og pískið vel saman. Setjið
kjötið í fat og veltið því vel upp
úr mariner ingunni og látið
standa í 6-12 tíma. Grillið eftir
smekk og kryddið með saltinu
og piparnum.







Kartöflusalat
150 gr soðnar kartöflur
150 ml majónes
1 dós sýrður rjómi 18%
1 msk. gróft sinnep
1 msk. fínt skorinn
skallotlaukur
1 msk. fínt skorin steinselja
Maldonsalt
Svartur pipar úr kvörn
Skerið kartöflurnar í litla
bita, pískið majónesið, sýrða
rjómann og sinnepið saman
í skál. Setjið kartöflurnar út
í ásamt skallotlauknum og
steinseljunni, blandið öllu vel
saman og bragðbætið með
saltinu og piparnum.
Tómat- og mangósalsa
1 box af sherrytómötum
2 stk. vel þroskuð mangó
2 stk. vorlaukur
2 msk. fínt saxaður kóriander
2 limesafi og börkur
2 msk. hlynsíróp
150 ml extra virgin ólífuolía
Maldonsalt
Svartur pipar úr kvörn
Við MælUM MEð
Banfi Brunello di Montalcino
Vínið hentar afar vel með
nautasteik, sérstaklega grillaðri
T-Bone steik, en einnig ýmiss
konar villibráð, sem og ostum.
Sangiovese-þrúgurnar í
þetta vín eru sérvaldar og
það fær síðan að þroskast í
eikartunnum í tvö ár sem gefur
því afar ljúfan en bragðmikinn
keim. Vínið er í afar góðu
jafnvægi þegar það hefur
fengið tíma til að þroskast,
sem er um 12 mánuðir eftir að
það hefur verið sett á flöskur.
Hér er um alvöru ,,Ítala" að
ræða sem margir telja með
bestu vínum. Jarðvegurinn,
veðurfarið, þrúgan og vinnslan
sjá til þess að afar fáir verða
sviknir af glasi af þessu höfuga
víni.