![]() verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, fjórar fyrir brottfararfarþega, eina ætlaða skiptifarþegum frá löndum utan Schengen-svæðis og þá fimmtu fyrir komufarþega á 1. hæð. Helstu vöruflokkar Fríhafnarinnar eru áfengi, fatnaður, leikföng, snyrtivörur, sælgæti og tóbak. glæsileg verslun sem býður upp á gott vöruúrval fyrir ferðamenn á öllum aldri. Þar má finna mörg vinsælustu erlendu vörumerkin og mikið úrval af íslenskum vörum, jafnt áfengi, snyrtivörur og sælgæti. Nú geta karlmennnirnir fundið allt sem þeir þurfa í Be A Man hluta verslunarinnar. Þar eru allar herrasnyrtivörur á einum stað auk þess sem boðin er hressing á meðan rétti ilmurinn er fundinn. er inn af brottfararverslun Fríhafnarinnar. Hún er sú eina sinnar tegundar hér á landi og þar má finna mikið úrval af vinsælustu vörunum úr Victoria`s Secret Beauty vörulínunni ásamt úrvali af nærbuxum, töskum, iPad og símahulstrum, svo eitthvað sé nefnt. Töskurnar og fylgihlutirnir eru eingöngu seldar í flugstöðvaverslunum Victoria`s Secret. heimsþekkt vörumerki fyrir konur og karla, á borð við Boss, Lloyd, Mulberry og Burberry, en verslunin er sú eina á Íslandi sem hefur fatnað frá Burberry á boðstólum. Handtöskur frá Mulberry þykja ómótstæðilegar og eru mjög eftirsóttar, sérstaklega af erlendum ferðamönnum sem segja verðlagið á þessu vörumerki í Dutyfree Fashion með því hagstæðasta sem þekkist. Íslensk hönnun hefur verið í forgrunni og er úrvalið fjölbreytt. Í dag bjóða 8 íslenskir hönnuðir fatnað, skó og fylgihluti í versluninni sýningarglugga landsins og hefur hann reynst mikilvægur stökkpallur fyrir unga íslenska hönnuði út í hinn stóra heim tískunnar. Ný merki bætast við reglulega og það nýjasta eru skyrtur frá Huginn Muninn sem hafa nú þegar slegið í gegn. flugstöðvarinnar og þar er að finna ágætis úrval af íslenskum vörum til að grípa með sér um borð í flugvélina. tekið miklum breytingum og var opnuð á nýjum stað á fyrstu hæð flugstöðvarinnar nú í júní. Verslunin þykir ein sú flottasta í Evrópu að mati viðskiptavina og úrvalið mjög alþjóðlegu vörumerkin í áfengi, snyrtivörum, sælgæti, tóbaki og leikföngum. Íslenskum vörum er gert hátt undir höfði í versluninni og íslensk hönnun fær að njóta sín, bæði í fatnaði og gjafavöru. Ray Ban sólgeraugu, fatnaður og minjagripir frá Rammagerðinni og 66°Norður, gjafavara frá Epal og skartgripir frá Sign eru áberandi í versluninni. mikla andlitslyftingu eftir breytingar undanfarinna mánaða. Í nýrri rúmgóðri verslun er tekið vel á móti farþegum sem koma til landsins enda er markmiðið með henni að ferðamenn þurfi ekki að bera með sér vörur frá fríhöfnum annarra landa. Ferðamenn geta notið ferðalagsins betur með því að kaupa inn þegar þeir eru lentir á Keflavíkurflugvelli á meðan þeir bíða eftir farangri sínum. Komuverslunin býður bæði íslenskar vörur og vörur sem fást ekki á innanlandsmarkaði. þjónusta sem við bjóðum viðskiptavinum okkar og hefur mælst mjög vel fyrir. Í gegnum Dutyfree Express er hægt að panta vörurnar á netinu og sækja, hvort heldur er við brottför eða komuna til landsins. Einfalt og þægilegt. Í komuverslun er sérstakt afgreiðsluborð fyrir þá sem hafa pantað vörur á netinu, þeir þurfa því ekki að bíða en geta alltaf bætt við í körfuna. |