background image
48 -- Júní
Júní -- 49
HUldA sif gUnnArsdóttir
Hvað er skemmtilegast við að
vinna í Fríhöfninni? Starfsfólkið.
Er ekkert erfitt að vakna svona
snemma á morgnana? Það getur
verið það ef maður fer ekki
nógu snemma að sofa! Annars
venst þetta vel.
Í hvaða deild er skemmtilegast
að vinna? Við erum svo heppin
að fá alltaf að skipta en tíminn
líður held ég hraðast á kassa.
Langar þig ekkert að fara til
útlanda þegar þú sérð allt þetta
fólk vera að fara á hverjum degi?
Jú, alveg rosalega! Það er pínu
erfitt við þetta starf.
Af hverju Fríhöfnin? (Af hverju
sóttir þú um hjá Fríhöfninni?)
Hafði heyrt frá fyrrum
starfsmönnum að þetta væri
skemmtilegt og fjölbreytt starf
svo ég sló til og sé ekki eftir því.
Hvað myndir þú kaupa ef þú værir
að fara til útlanda eða koma heim?
Nammi.
Er einhver vara sem allir þurfa
að eiga? Æ, þetta er allt svo
sniðugt fyrir alla.
óliVEr stEinAr jEnssOn
Hvað er skemmtilegast við
að vinna í Fríhöfninni? Bara
allt, góður starfsandi og
skemmtilegt fólk, það er það
sem skiptir öllu máli.
Er ekkert erfitt að vakna svona
snemma á morgnana? Nei alls
ekki, bara fara snemma að
sofa, þá er þetta fínt.
Í hvaða deild er skemmtilegast að
vinna? Be A Man og á kassa.
Langar þig ekkert að fara til
útlanda þegar þú sérð allt þetta
fólk vera að fara á hverjum degi?
Nei, ekkert mikið.
sUMAr"
KrAKKAr"
unGa FÓlKIð Í FrÍHÖFnInnI
Eins og gengur og gerist bætist
í starfsmannaflóruna á sumrin
þegar ,,fastafólkið" fer í frí og
sumar,,krakkarnir" koma inn.
Við spjölluðum við nokkra
eðal-sumarstarfsmenn um lífið
í Fríhöfninni.
AlfrEð ElÍAssOn
Hvað er skemmtilegast við að
vinna í Fríhöfninni? Alltaf að
hitta nýtt fólk og skemmtilegur
vinnuandi.
Er ekkert erfitt að vakna svona
snemma á morgnana?
Það er vont en það venst.
Í hvaða deild er skemmtilegast
að vinna? Fashion (Dutyfree
Fashion)
Langar þig ekkert að fara til
útlanda þegar þú sérð allt þetta
fólk vera að fara á hverjum degi?
Ekkert smá, hver vill ekki sól.
Af hverju Fríhöfnin? (Af hverju
sóttir þú um hjá Fríhöfninni?)
Hress og skemmtilegur
vinnustaður.
Hvað myndir þú kaupa ef þú værir
að fara til útlanda eða koma heim?
Nóg af áfengi!
Er einhver vara sem allir þurfa að
eiga? Sólarvörn og peli.