background image
2
22 -- Júní
Júní -- 23
snyrtiVÖrUr
grEEn tEA HOnEysUcKlE
Blóma- og sítrusilmur. Þessi töfrandi blanda geitatopps og
ferskra grænna telaufa angar af unglegum kvenleika. Sætleiki
geitatoppsins sameinast ferskleika grænu telaufanna og
myndar hlýlega og upplífgandi angan. Þokkafullur, unglegur,
glaðlegur, blíður, kvenlegur.
jEAn PAUl gAUltiEr clAssiqUE
Að þessu sinni er sumarilmurinn frá Jean Paul Gaultier
með austurlensku yfirbragði. Flaskan er skreytt með
japönsku húðflúri og er Koi-fiskurinn áberandi en hann
táknar gæfu og samheldni. Ilmurinn er ferskur og léttur.
Blómlegir tónar, ilmappelsína og vanilla.
zEn sUn
Ilmvatnið For her, ZENSUN, 100 ml er innblásið af hinu
upprunalega ZEN eau de parfum. Glitrandi ljósbleik áferð
sem minnir á kirsu-berjablóm gefur ilmvatninu kvenlegt
og glæsilegt yfirbragð. Upplífgandi tónar ilmappelsínu
og mangó mynda fínlega angan sem fléttast saman við
moskusilm, svo úr verður hlýr amberilmur sem er bæði
ferskur og líflegur ­ tilvalinn fyrir fjöruga daga í sólskininu.
cOOl wAtEr intO tHE OcEAn
Davidoff Cool Water Into The Ocean er eins ferskur og blær
sumars við sjóinn. Sitrus, mandarína og greipaldin í bland
við kryddjurtir gera þennan frábæra herrailm sumarlegan
og einstaklega ferskan.
jEAn PAUl gAUltiEr lE MAlE
Herrailmurinn frá Jean Paul Gaultier er einnig með
austurlensku yfirbragði og flaskan er skreytt með
japönsku húðflúri.
Upplífgandi og örvandi ilmur þar sem lofnarblóm, mynta,
kardimomma, vanilla, gras og laufblöð eru áberandi.
zEn sUn fOr MEn
For him, ZENSUN for men, 100 ml er nútímaleg túlkun
á hinum rómaða ilm ZEN for MEN One. Þunnt lag af
dularfullum bláum lit skapar látlaust en fágað útlit. Frískleiki
vatns blandast ferskum sítrustónum, sterkri mintu og
karlmannlegum viðarilmi svo úr verða kröftug og hressandi
áhrif.