background image
Plan B skiptir máli
Veldu varaleið sem hentar þér:
Síðustu ár hefur uppitími netþjónustu
Vodafone til fyrirtækja yfir Metronetið verið
einungis brotabroti úr prósenti frá því að vera
100% allan ársins hring. Þó er aldrei hægt
að koma algerlega í veg fyrir hættuna á
bilunum, hvort sem þær eru kerfislægar eða
staðbundnar hjá einstökum viðskiptavinum
eða útibúum þeirra.
Með aukinni tækniþróun og notkun
gagnasambanda í atvinnulífinu verður
starfsemi viðskiptavina Vodafone sífellt háðari
því að netsamband sé ávallt til staðar og þol
fyrir bilunum til lengri eða skemmri tíma verður
minna. Því hefur eftirspurn eftir varatengingum
sem geta tekið sjálfkrafa við ef aðalsamband
rofnar aukist talsvert undanfarin misseri.
Fjölbreyttir möguleikar
Þar býr Vodafone vel, því möguleikar á
varatengingum eru fjölbreyttir. Þegar
viðskiptavinir óska eftir varatengingum
framkvæmir starfsfólk okkar í samstarfi við
viðskiptavininn þarfagreiningu á því hvaða kerfi
þurfi á varasamböndum að halda og meta í
kjölfarið hvers konar ,,Plan B" hentar best.
Í þeim tilvikum sem rekstur viðskiptavinar
þolir ekkert rof á netsambandi er öruggasta
leiðin að koma upp varaleið sem er á öðru
dreifilagi en aðalsamband. Sé fyrirtæki til að
mynda með ljósleiðaratengingu er ákjósanlegt
að varasambandið sé á koparlínu, en einnig
getur verið heppileg lausn að setja upp aðra
aðskilda ljósleiðaratengingu með öðru inntaki
en aðaltengingin.
Í öðrum tilvikum, sérstaklega þegar einungis
þarf að setja upp varaleið fyrir hluta starfsemi
fyrirtækis, getur Vodafone Farnet ­ farsímanetið
með gagnaflutningi yfir 2G, 3G eða 4G ­ verið
hentugasta lausnin. Slík varaleið er til dæmis
heppilegur kostur fyrir verslanir sem þurfa að
tryggja stöðuga tengingu posakerfis, jafnvel þótt
rof verði á fastlínutengingu.
Hafðu samband
Þarf þitt fyrirtæki að setja upp trygga
varatengingu? Hafðu samband við
þinn viðskiptastjóra eða hringdu í
fyrirtækjaþjónustu Vodafone í síma
599 9500 og við aðstoðum þig við að
finna réttu lausnina.
3G Farnet
4G Farnet
ADSL
SHDSL
Ljósleiðari
Mögulegar varaleiðir fyrirtækja
vodafone
| Vetur 2013
7